Main menu:

Flokkar


Nýjar athugasemdir:

Eldra

júlí 2010
S Þ Mi Fi L
« júní    
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Hmm!

Höfundur og ritstjóri Málbeinsins er Gísli Ásgeirsson. Netfang: gisli(hjá)internet.is ÖLL RÉTTINDI ÁSKILIN!

  • Innskráning
  • RSS
  • Athugasemdir með RSS
  • Site search

    Afhjúpun Mengellu - nafnleysingjablogg

    Nafnleysið er mörgum heilagt og nafnleysingjum þykir það gróf óg óréttlætanleg árás á einkalíf sitt ef ofan af þeim er flett. Skemmst er að minnast titrings Málverjanna svonefndu á málefnin.com, þegar svo hörð hríð var gerð að eiganda vefsins að hann lét af hendi ip-tölur tiltekinna notenda. Málefnin.com eru enn nokkuð virk en virkasti nafnleysingjavefurinn er Barnaland, sem er iðulega í fréttum út af rætnum ummælum um nafngreinda einstaklinga. Í skjóli nafnleysis er margt látið fjúka sem viðkomandi höfundar þyrðu aldrei að segja eða skrifa undir nafni.
    Þekktasti nafnleysinginn á netinu er Mengella. Frá upphafi hafa margir velt fyrir sér hver standi að baki þessari vefsíðu og lengi vel leist netverjum vel á kenningu Flautublásarans. Þegar flett er í færslum og skoðaðar athugasemdir, eru fleiri nefndir til sögunnar, þar á meðal sá sem hefur skrifað sem Mengella.

    Um nafnleysi segir Mengella m.a. þetta:
    “Réttmæt rök gegn nafnleysi eru m.a. þau að ef allir þyrftu að skrifa undir nafni væri minna um meiðandi skrif og rugl. ”
    Ég er sammála þessu.

    Föst ip-tala er eins og fingrafar.
    Þar sem ip-tölur liggja víða á lausu var tala Mengellu auðfundin.
    Hún er 194.144.66.202.
    Notandi tölunnar er Ólafur Sindri Ólafsson.
    Hann skrifar einnig á vefsíðunni olisindri.blogspot.com.

    Athugasemdir

    Svo mælir :hildigunnur
    Klukkan: 11:16 2. ágúst, 2007.

    jahá!

    Hvurnig fékkstu annars upplýsingar um eiganda ip-tölunnar? Hélt maður þyrfti dómsúrskurð.

    Svo mælir :Þórður Ingvarsson
    Klukkan: 11:45 2. ágúst, 2007.

    Má þetta?

    Svo mælir :Elías Halldór
    Klukkan: 11:46 2. ágúst, 2007.

    By golly, you’ve got it!

    Þann 13. júlí kl 13:46 póstar Mengella http://mengella.blogspot.com/2007/07/lesa-yfir-sig.html og 14:36 sama dag sendi ég inn (mína einu) nafnlausa athugasemd við Mengellu, “Ég er þegar búinn að hrekja þessar kenningar þínar í ritgerð minni á http://www.elsewhere.org/pomo
    Á sömu mínútu skoðar 194.144.66.202 mína bloggsíðu. Tilviljun? Ég held ekki!

    Svo mælir :Gísli
    Klukkan: 11:46 2. ágúst, 2007.

    Googlegrúsk og samlagning staðreynda.
    Þarf ekki meira.

    Svo mælir :Elías Halldór
    Klukkan: 12:40 2. ágúst, 2007.

    Nú á bara eftir að sannreyna kenningu mína um að Mengella sé Stella Blómkvist.

    Svo mælir :Gísli
    Klukkan: 03:20 3. ágúst, 2007.

    Hér er piltur í athyglisverðum bol.
    http://a243.ac-images.myspacecdn.com/images01/61/l_b2750c573e838867b87b61cfd7933672.jpg

    Ping :Málbeinið » Uppgjör og uppljóstranir
    Klukkan: 19:30 13. nóvember, 2007.

    [...] Annars hefur verið merkilegt að fylgjast með meintri afhjúpun Mengellu. Sumir trúðu þessu eins og nýju neti og ákváðu að hengja bakara fyrir smið en þá fór fyrir þeim eins og Þórbergi Þórðarsyni þegar hann skráði ævisögu séra Árna Þórarinssonar. Það fer aldrei vel þegar trúgjarnir hitta þá sem hafa gaman af að hagræða sannleikanum. Enda fór svo að afsökunarbeiðna var krafist á báðar hendur og fjarlægði einn bloggari færslur vegna þessa. Mín skoðun á nafnleysingjum er óbreytt og vísa í fyrri skrif um þetta mál. Ekkert hefur komið fram sem hnekkir þessum staðreyndum. Annars er þessi brandari orðinn frekar snjáður. [...]

    Skrifaðu athugasemd