Main menu:

Flokkar


Nýjar athugasemdir:

Eldra

febrúar 2010
S Þ Mi Fi L
« jan.    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28  

Hmm!

Höfundur og ritstjóri Málbeinsins er Gísli Ásgeirsson. Netfang: gisli(hjá)internet.is ÖLL RÉTTINDI ÁSKILIN!

  • Innskráning
  • RSS
  • Athugasemdir með RSS
  • Site search

    Náttskinn og dagskinn

    Þegar elstu barnabörnin voru yngri, taldi ég þeim trú um að heimiliskötturinn færi alltaf úr dagskinninu á kvöldin og smeygði sér í náttskinnið áður en hann gengi til náða. Að morgni væri hann jafnan eldsnöggur að skipta um skinn eftir morgunverðinn. Þetta fannst þeim mjög spennandi og ræddu skinnskipti kattarins í þaula meðan þau fóru í náttfötin sín í gistiheimsóknum.
    Nú eru þau nokkrum árum eldri og vita betur, en gera afa sínum það til geðs að halda sögunni á floti, því sá yngsti þarf að fá að taka þátt í þessu litla ævintýri hversdagsleikans.

    Meðan ég hjálpaði kisa að klæðast dagskinninu í morgun og þurrkaði af honum regndropana, varð til þessi tástagaða vísa.

    Hratt er gott að klæða kött
    kattar þerra skottið vott
    Glottir breitt með glæstan hött
    glettinn semur rottuplott.

    Skrifaðu athugasemd