Kvennalandslið og kvenfélag án klæða
Þrautalending margra kvenna til að vekja á sér athygli er að fækka fötum. Hérlendis fer hin hæfileikaríka Ísdrottning fyrir kynsystrum sínum en hefur nú fengið harða keppni frá kvenfélagi Biskupstungna (heimild: garn.is).

Munurinn á þessum konum og Ísdrottningunni er sennilega sá helstur að fyrir austan fjall er minna um sílikon en meira um ósvikið hold. Í mín eyru hefur verið fullyrt að sílikon verði hart í frosti og það hentar illa við sveitastörf.
Ástralska kvennalandsliðið gerði þetta líka fyrir ÓL 2000. Síðan hafa framfarir í kvennaboltanum gert að verkum að nú þurfa konur ekki á svona athygli að halda. Þær eru góðar fyrir sinn hatt inni á vellinum.
Miðað við afrek íslenska karlalandsliðsins þarf það bráðum á svona athygli að halda. Árangurinn innan vallar er ekki til að hrópa húrra fyrir, enda flestir með sigg á rassinum eftir bekkham undanfarin ár hjá útlendum 2. deildar liðum og misgóðum “frægum” liðum.
Birt: nóvember 25th, 2009 í Hroki og hleypidómar.
Aths: Segðu

Skrifaðu athugasemd