Ríma af Tiger Woods -Annar hluti:
Hinn þeldökki eða elgtanaði kylfingur, Tiger Woods, eða Tígur Hlynur, eins og hann heitir í fyrstu vísunni, var mörgum hugleikinn í dag. Þar sem ekki er gefið að þeir sem kasta einhverju frá sér á Fésbók, vilji að það fari víðar, birti ég ekki framlög annarra nema með sérstöku leyfi viðkomandi. Undantekningar eru höfundar sem ég tel mig nógu tengda.
Fyrsta vísan varð til eftir fyrripart frá bífalningsmanni í ónefndri stofnun hér í bæ.
Tengdamóðir Tígurs Hlyns
tínir af sér spjarir.
Kólfinn strýkur kylfuprins
á konu æstur starir.
innir: “Kæra mútter,
kylfu mína og pútter?”
Áfram var haldið að leika golfið.
Mörgum þykir Tiger töff
tengdamóðurfari.
Er nú kominn út í röff
með Elínu undir pari. (PÁÁ)
Fram kom að móðir Parísardömunnar hefði þungar áhyggjur af framferði Tigers. Hennar framlag var bundið í rím á þennan hátt:
Kvelst nú móðir Kristínar
kunni vel að meta
negra sem um næturnar
neðan mittis feta.
Heimavinnandi húsmóðir í Norðurmýri nefndi hárreyttar konur (að vísu með ópenna orðalagi).
Reitir æstur af þeim hár
einnig tætir spjarir
þær fella yfir Tiger tár
en tengdamamman hjarir.…
Um vandræði Tigers í kvenmannsleysinu var bent á þetta:
Á golfvelli má greina mann
sem gengur afar stinnur
út um flatir eigrar hann
en enga holu finnur.
Víða utan vallar golf
vaskur holur taldi.
Hjá Ellu og Tiger fór allt á hvolf
út af framhjáhaldi. (PÁÁ)
Þegar ferskeytluformið þótti fullnýtt, var gripið til annarra bragarhátta.
Ekki verður hann vanaður
af vífum er gjarna manaður
þær vilja mann
vænan sem hann
sem verulega er tanaður.
Skógarbóndi á Agureyri reifaði almennt vandamál Tigers og kastaði fram spurningunni um hið fullkomna líf.
Tiger er merkismaður
mikið á hann af fé
með kylfu kátur og glaður
kúlu leggur á té
varla nægir eitt víf
úti ákafur ríður
ósköp í liminn svíður.
Er þetta fullkomið líf?
Birt: desember 9th, 2009 í Kveðskapur.
Aths: 5
Athugasemdir
Svo mælir :HT
Klukkan: 22:51 9. desember, 2009.
Einn er úti á velli
yli húsa fjær
brúnum veifar belli
blámaður og hlær
kvelur kvenmannsleysið
kúluparið þanið,
ekki er ýkja beysið
afreksnegrans planið
Golfarinn er graður
gleymir spúsu fljótt
glepst sá góði maður
girnist kvenna gnótt
otar augum stórum
allar vill þær gilja
Ekki er í hans órum
að Elín senn vill skilja
Tiger hefur talið
- tæpitungulaust-
mærir meyjavalið
mjúkri drengjaraust
berar brúnleitt slátur
býður þeim að kyssa
drukknar dómgreind missa
djarfar baldintátur
Golfarinn á grínið
grýtir konukind
girndin grípur svínið
gríðarleg er synd.
Tekur kippi tíða
Tiger ólmast lætur
Einn er úti að ríða
Elín heima grætur
Elting ill nú fæðist
yfir skyggir él
lúmskur snápur læðist
ljótri beitir vél
Frúin heima fögur
finnur í síma pár
klæmnar kærleikssögur
konan fellir tár
Mædd á mannsins táli
mælir Elín grimm
Finn nú fyrir stáli
fær sér kylfu fimm.
Holu að fara í höggi
hugsar frúin fín
sveiflar yfir skröggi
stóðlíf hefnir sín
Tengdamamma tárvot
Tiger tekur næst
Einhver voru atlot
en engin skýring fæst
Elín víkur ekki spönn
eflaust bætur fær
glottir táta keik við tönn
Tiger inn að skinni flær
Svo mælir :spritti
Klukkan: 10:08 10. desember, 2009.
Hnittið og skemmtilegt. Það verður ekki annað sagt.
Svo mælir :Gisli
Klukkan: 10:16 10. desember, 2009.
Hjálmar! Glæsilegt.
Svo mælir :Páll Ásgeir
Klukkan: 16:53 10. desember, 2009.
Ég tek ofan minn rímhatt fyrir Hjálmari.
Svo mælir :Páll Ásgeir
Klukkan: 17:14 12. desember, 2009.
Mér skilst að þessi knappa vísa um vandræði Tægers sé eftir Hjálmar Freysteinsson lækni á Akureyri. Sérstaka athygli hlýtur að vekja íslenskun hans á nafni kappans.
Trúlega hefur Tígur Viðar
tafið mest.
Í holur milli hnés og kviðar
hittir best.

Skrifaðu athugasemd