Main menu:

Flokkar


Nýjar athugasemdir:

Eldra

júlí 2010
S Þ Mi Fi L
« júní    
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Hmm!

Höfundur og ritstjóri Málbeinsins er Gísli Ásgeirsson. Netfang: gisli(hjá)internet.is ÖLL RÉTTINDI ÁSKILIN!

  • Innskráning
  • RSS
  • Athugasemdir með RSS
  • Site search

    Uppselt á Laugaveginn 2010

    Á þriðjudagsmorgni hófst skráning í Laugavegshlaupið 2010. Það verður í júlí í sumar. Ekki missir sá sem fyrstur fær, segir gamalt máltæki. Á einum degi seldist upp. 400 manns fengu inni en aðrir lenda á biðlista. Þar eru nú rúmlega 50 manns. Áhuginn er meiri en nokkru sinni fyrr.

    Þetta er íþróttafrétt. Hún fær varla inni í öðrum miðlum en þessum. Þess má geta að Hjólreiðafélag Reykjavíkur kom að frétt um eina keppni í sumar, af því að menn á vegum félagsins tóku myndir, klipptu efnið og sömdu textann og færðu RÚV tilbúið.

    Þessa leið fór Pétur Helgason, formaður FM. Heimildamynd hans frá Laugaveginum var sýnd fyrir RM í sumar. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli. Ekki reikna með henni í sjónvarpsstöðvum. Smellið hins vegar á tengilinn og gefið ykkur hálftíma til að horfa. Myndin er vistuð á innlendum netþjóni og niðurhal kostar því ekkert.

    PS.
    Að lokum legg ég til að íþróttafréttamenn fái engu að ráða um val á íþróttamanni ársins.

    Athugasemdir

    Svo mælir :Harpa J
    Klukkan: 10:11 7. janúar, 2010.

    Ég horfi of á danska sjónvarpið og þar eru hjólreiðar og hlaup töluvert áberandi í íþróttafréttunum. Og margt annað líka. En þetta er auðvitað stórmerkilegt með íþróttafréttirnar hérna. Ef þær birta eitthvað frá fimleika eða danskeppnum til dæmis, þá er það yfirleitt svona niðurklippt ,,krúttinnslag” í blálokin, ekki alvöru umfjöllun með vandaðri myndatöku og tiheyrandi
    .

    Svo mælir :Máni Atlason
    Klukkan: 10:22 7. janúar, 2010.

    Tek undir þessi skrif, 2. sætið í kjörinu á íþróttamanni ársins var út í hött! Ætlaru að hlaupa í júlí?

    Svo mælir :Gísli
    Klukkan: 11:06 7. janúar, 2010.

    Ég verð á Laugaveginum í júlí. Að vísu ekki með númer. Ert þú skráður, Máni?

    Svo mælir :Máni Atlason
    Klukkan: 19:58 8. janúar, 2010.

    Já ég verð með númer, númer uno auðvitað en það er reyndar núll fyrir aftan svo númerið er 10. Núll er þó ekki neitt eins og allir vita.

    Mér finnst að aðstandendur hlaupsins ættu að bjóða íþróttafréttamönnum frípassa í hlaupið. Þessir miðaldra menn hafa gott af að rölta aðeins um hálendið.

    Skrifaðu athugasemd