Frá lesendum
Framlög lesenda í Bryndísar rímur Oddsdóttur:
Lék hún glöð við gullin sín,
gæfuríka stráka.
Hún kunni’ að fást við Fjaðralín
og fleka Timburláka.
Höf: Stefán Halldórsson
Á snoðinkolli ber til brodds
burtu sneiðast fjaðrir.
Blessunin hún Bryndís Odds
breysk er líkt og aðrir.
Höf: Páll Ásgeir
Gekk hún æ með góðum glans
og gott eitt vildi sýsla
Rak hana því í rogastans
við rímurnar hans Gísla.
Höf: Gunnlaugur Júlíusson
Rímorð við Federline má finna í áður óþekktri Britneyjarrímu, sem greinir frá þeim válega atburði þegar Britneyjan sagði Kevin sínum upp via SMS, svohljóðandi:
Feiman sendi Federline
frétt með SMS-i,
vígreif eins og Vinstri Græn,
vísdómsorðin þessi:
“Ég sit á barnum, feeling fine,
og frelsið set á oddinn.
Fuck you Mr. Federline,
og fáðu þér á broddinn.”
Páll Ásgeir kveður:
Ég held að Britney hafi kynnstFedda þegar hann mætti í audition sem dansari:
Upp á sviðið veður væn
vaskra pilta torfa.
Fremstur skeiðar Federline
fer hún strax að horfa.
Britneyjar þá brosið vex
blómgast kinnin rjóða.
Ekkert hugsar samt um sex
settleg hringatróða.
Eyþór Á kveður:
Mánafákar makka hringa
minnist drós við stút
Blossi fer um Blöndhlíðinga
er Britney ríður út.
Athugasemdir
Svo mælir :anna
Klukkan: 09:45 23. ágúst, 2007.
Ég spyr í sakleysi mínu vegna athugasemdar þinnar á Moggabloggi:
Fær Sýsli Theófílusson tilnefninguna persónulega og því réttnefndur Lúkas?
Svo mælir :Gísli
Klukkan: 09:55 23. ágúst, 2007.
Allt þetta mál hefur verið blásið svo hrikalega upp að það verðskuldar tilnefningu. Sýsli má gjarna heita Lúkas mín vegna. Að öðru leyti blanda ég mér ekki í þetta bloggarahópefli því þar eru nógu margir á fleti fyrir.
Skrifaðu athugasemd