Um höfund
Síðuhöfundur, ritstjóri, eigandi, ábyrgðarmaður, prókúruhafi, framkvæmdastjóri og ímyndarhönnuður þessarar síðu hefur sjaldan sett ljós sitt undir mæliker. Hann er Vestfirðingur að mestu leyti, ekki eins mikill sveitamaður og hann þykist vera, framsóknarhatari til margra ára og þykir stundum ágætt að tala um sig í þriðju persónu eins og þessar línur sýna.
Höfundur hefur B.Ed. próf frá KHÍ og var kennari við Iðnskólann í Hafnarfirði (1974-75), Grunnskóla Reyðarfjarðar (1975-76), Glerárskóla á Akureyri 1979-81), Ljósafossskóla í Grímsnesi (81-83), Vesturbæjarskóla í Reykjavík (83-85) og Ölduntúnsskóla í Hafnarfirði frá 1986, þar sem hann hélt út í þrettán ár áður en einkageirinn bauð betur. Frá 1986 starfaði hann við þýðingar með kennslu en frá 1995 hefur hann helgað sig þessu göfuga hlutverki og þýðir jöfnum höndum tyrfnar skýrslur og sértækt fræðsluefni, kvikmyndir og þætti fyrir sjónvarp, léttmeti og ljóð fyrir sjálfan sig og aðra undir nafni Túnfiska s/f sem hann stofnaði með Matthíasi Kristiansen árið 1986. Skrifstofur fyrirtækisins eru að Brautarholti 28. Hér væri við hæfi að telja upp helstu viðskiptavini Túnfiska til að auka orðstír okkar en þá yrði listinn langur því við gerum ekki upp á milli þeirra sem sjá okkur fyrir salti í grautinn. Þeir sem vilja komast í hóp viðskiptavina, geta hringt í síma fyrirtækisins, 5621745, og verður höfundur þá fyrir svörum. Hann þykir blíðmáll.
Höfundur hefur svipuð áhugamál og fegurðardrottning, þ.e. lestur góðra bóka og ferðalög, ásamt líkamsrækt og almennri útlitsdýrkun. Nýjasta áhugamál höfundar er sjósund. Smyr hann sig þá hákarlalýsi og syndir með fiskum og skólpi við strendur höfuðborgarinnar.
Höfundi þykir gaman að hlaupa og hjóla.
Höfundur á hálfan kött.
Höfundur tilheyrir góðri fjölskyldu sem í eru bæði börn og barnabörn. Þau síðastnefndu eru í miklum hávegum hjá höfundi.
Höfundur býr í Hafnarfirði og er þar aðfluttur andskoti.
Höfundur var framsóknarmaður í tvær vikur. Svo batnaði honum.
Höfundur er árrisull.
Höfundur drekkur ekki áfengi og hefur ekkert umburðarlyndi gagnvart reykingafólki.
Höfundur hefur lengi rekið hjáfræðaþjónustu, ásamt hugsanaráðgjöf og almennri skoðanamyndun, í samstarfi við félagsmeinafræðinginn Má Högnason, sem útskrifaðist fyrstur manna í þessari sérgrein frá háskólanum í Lundi í Svíaríki.Orkusteinasalan er nú aðeins opin á sunnudögum eftir hádegi. Gælusteinar eru uppseldir.
Höfundur hefur séð álfa og huldufólk.
Höfundur hefur netfangið gisli(hjá)internet.is.
Höfundi er ljóst að hér mætti segja fleira en þykir þetta nóg í bili. Ekki er útilokað að höfundur bæti við upplýsingarnar, telji hann upp á vanta.
Gert í Hafnarfirði í júlíbyrjun
Gísli Ásgeirsson
Skrifaðu athugasemd