Brennum það allt
Líkt og ráðamenn hvetja okkur til er gott að reyna að sjá hið góða við þær slæmu aðstæður sem þjóðin hefur ratað í. Hið gleðilega er að leiktjöldin og blekkingarhjúpurinn hefur brunnið til ösku með öðru nýtilegu. Hvert sem litið er blasir við staðfesting á því að Ísland var ekki það ríki sælu og velferðar sem menn vildu trúa heldur ormagryfja spillingar og frændhygli og veðsett upp í rjáfur að auki. Samansúrruð flækja seldra stjórnmálamanna, siðblindra viðskiptamanna og ótíndra þjófa sem umgangast þjóð sína eins og hún sé undirgefin drusla án skammtímaminnis.
Þess vegna er rétt á þessu stigi að hyggja lítt að björgunaraðgerðum heldur láta kofann brenna niður í svörð. Þá verður kannski auðveldara að byggja nýtt á rústunum. Það er nefnilega ekkert nýtilegt í kösinni. Brennum það allt saman.
Birt: 4.nóvember, 2008 íÓflokkað.
Athugasemdir: 6